
LEX lögmannsstofa
Afburðaþekking á meginsviðum íslenskrar lögfræði
Í mörgum af flóknustu og mikilvægustu málum sem rekin hafa verið á Íslandi, hefur LEX lögmannstofa verið ítrekað valin til ráðgjafar.

Leiðandi í þjónustu við íslenskt atvinnulíf
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á.
Lögfræðingar LEX hafa afburða þekkingu á meginsviðum íslenskrar lögfræði
Fólkið okkar

Lilja Jónasdóttir
Lilja er einn fremsti sérfræðingur landsins í sjó- og flutningarétti og veitir bæði innlendum og erlendum fyrirtækjum lögfræðilega ráðgjöf á því sviði. Þá veitir Lilja ýmsum opinberum stofnunum og fyrirtækjum lögfræðilega ráðgjöf varðandi stjórnsýslurétt og eignarrétt.
Eyvindur Sólnes
Eyvindur hóf störf á LEX árið 2017. Eyvindur sinnir aðallega ráðgjöf við á sviði félagaréttar, fjármála- og samningaréttar, auk samkeppnisréttar. Hefur hann jafnframt umtalsverða reynslu á sviði fullnustu og gjaldþrotaskiptaréttar.
Garðar Víðir Gunnarsson
Garðar Víðir Gunnarsson gekk til liðs við LEX árið 2009 og hefur verið á meðal eigenda síðan 2013. Hann er helsti sérfræðingur LEX á sviði skattaréttar og hefur veitt fjölmörgum fyrirtækjum, bæði innlendum og erlendum, ráðgjöf á sviði skattamála.
Guðrún Lilja Sigurðardóttir
Guðrún Lilja Sigurðardóttir er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Landsrétti. Í störfum sínum hjá LEX hefur Guðrún Lilja lagt megináherslu á samkeppnisrétt, skattarétt og félagarétt , auk þess sem hún hefur annast verkefni á sviði sjó- og flutningaréttar, samningaréttar, málflutnings og gjaldþrotaréttar, einkum mál er varða riftun og endurheimt verðmæta.
Kristín Edwald
Kristín hóf störf hjá LEX árið 2002. Kristín er einn af reyndustu málflytjendum landsins fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Kristín er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði vátryggingaréttar og skaðabótaréttar.
Alþjóðleg matsfyrirtæki hafa um árabil valið LEX sem eina af leiðandi lögmannsstofum landsins.
„LEX Law Offices boasts a broad corporate and commercial offering, including public M&A mandates. The law firm also possesses high-level expertise in banking and finance. Its lawyers additionally assist with the compliance and regulatory aspects of transactions.“
„LEX Law Offices boasts a broad corporate and commercial offering, including public M&A mandates. The law firm also possesses high-level expertise in banking and finance. Its lawyers additionally assist with the compliance and regulatory aspects of transactions.“