Beint í efni
Starfssvið

Skaðabætur og vátrygingar

Skaðabætur og vátryggingar

LEX lögmannsstofa veitir viðskiptavinum alhliða þjónustu á sviði vátryggingaréttar og skaðabótaréttar. Sérfræðingar stofunnar hafa yfir að ráða áratuga langri reynslu af ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga á þessum réttarsviðum.

Skólavörðustígur

Sérhæfð þekking og reynsla

Sérfræðingar LEX á sviði skaðabótaréttar og vátryggingaréttar búa yfir áratuga langri reynslu af ráðgjöf á þeim sviðum. Í því felst bæði ráðgjöf til þeirra sem verða fyrir tjóni sem og þeirra sem skaðabótakröfum er beint að. Hvað tjónþola varðar nær ráðgjöfin til að mynda til innheimtu slysabóta vegna líkamstjóns, eignatjóns, rekstrartjóns og ófjárhagslegra tjóna svo sem vegna miska og ærumeiðinga. Á sama hátt gætir LEX hagsmuna þeirra sem slíkar kröfur beinast að.

Sérfræðingar LEX hafa jafnframt um áratuga skeið flutt mál fyrir dómstólum fyrir hönd vátryggingafélaga á sviði vátryggingaréttar og skaðabótaréttar, þ.m.t. vegna krafna sem gerðar eru á hendur vátryggingafélögum fyrir dómstólum. Á meðal helstu viðskiptavina LEX á því sviði eru Sjóvá-Almennar tryggingar hf.

LEX lögmannsstofa leggur mikla áherslu á að veita persónulega þjónustu, þar sem hver viðskiptavinur fær aðstoð sem er sérsniðin að þeirra sérstökum þörfum og aðstæðum.

Þá veita sérfræðingar LEX innlendum og erlendum aðilum alhliða ráðgjöf á sviði vátryggingaréttar.

Sérfræðingar okkar fyrir
skaðabætur og vátrygingar