Beint í efni

Óskar Sigurðsson

Lögmaður • Eigandi

Óskar hefur starfað hjá LEX síðan árið 2016. Hann hefur um árabil verið á meðal fremstu málflutningsmanna landsins. Helstu sérsvið hans eru eignaréttur, verktakaréttur, bygginga- og skipulagsmál, umhverfis- og auðlindaréttur og mál er varða kaup og sölu fasteigna.

Óskar Sigurðsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Óskar hefur um árabil verið á meðal fremstu málflutningsmanna landsins. Helstu sérsvið hans eru eignaréttur, verktakaréttur, bygginga- og skipulagsmál, umhverfis- og auðlindaréttur og mál er varða kaup og sölu fasteigna. Óskar er fæddur árið 1972 og lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1997. Hann hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi ári síðar og fyrir Hæstarétti árið 2005. Óskar hefur kennt eigna- og kröfurétt við Háskóla Íslands frá árinu 1998. Óskar hefur tekið sæti sem sérfróður meðdómari í málum fyrir héraðsdómi og átt sæti í Matsnefnd eignarnámsbóta.

    • Hæstiréttur
    • Landsréttur
    • Héraðsdómstólar
    • LEX2016-
    • JP lögmenn2009-2016
    • Málflutningsskrifstofan2000-2009
    • Logos lögmannsþjónusta2000
    • A&P Lögmenn1997-2000
    • Löggilding til starfa sem fasteigna- fyrirtækja og skipasali2009
    • Hæstaréttarlögmaður 2005
    • Héraðsdómslögmaður 2000
    • Háskóla Íslands, cand. Jur. 1997
    • Fjölbrautaskóli Suðurlands1992
    • Háskóli Íslands, aðjúnkt við lagadeild 2007-
    • Áfrýjunarnefnd ágreiningsmála á kirkjulegum vettvangi, varamaður2016-2023
    • Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara2012-2021
    • Kennari á námskeiðum til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala2007-2015
    • Háskóli Íslands, stundakennari við lagadeild 1997-2007
    • Úrskurðarnefnd um ágreining í verktakamálum, formaður 2003
    • LEX, stjórn 2022-
    • Lögmannafélag Íslands, ritari2011-
    • Fasteignasalan Árborgir ehf. - stjórnarformaður2002-
    • Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf., stjórnarmaður2013-2015
    • Selós ehf., stjórnarformaður2012-2013
    • Lögmannafélags Íslands, varastjórnarmaður2009-2011
    • Fjármálaeftirlitið, varamaður í stjórn 2009-2011
    • Securitas hf., stjórnarformaður2009-2010
    • Plastprent hf., stjórnarformaður2009
    • Knattspyrnudeildar Selfoss, formaður2008-2015