Beint í efni

Kristín Edwald

Lögmaður • Eigandi

Kristín hóf störf hjá LEX árið 2002. Kristín er einn af reyndustu málflytjendum landsins fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Kristín er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði vátryggingaréttar og skaðabótaréttar.

Kristín Edwald er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti. Kristín hóf störf hjá LEX árið 2002 og hefur starfað hjá félaginu óslitið síðan. Kristín er einn af reyndustu málflytjendum landsins fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Þá hefur hún reynslu af rekstri mála fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Kristín er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði vátryggingaréttar og skaðabótaréttar og hefur mikla reynslu á sviði félagaréttar, ráðgjafar til stjórnenda og stjórnarháttum, sem og á sviði vinnuréttar. Auk þess hefur hún yfirgripsmikla reynslu af flutningi umfangsmikilla efnahagsbrotamála fyrir íslenskum dómstólum.

    • Hæstiréttur
    • Landsréttur
    • Héraðsdómstólar
    • LEX2002 -
    • Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra2000-2002
    • Málflutningsskrifstofa, síðar Logos1997-2000
    • Hæstaréttarlögmaður2005
    • Héraðsdómslögmaður1998
    • Lagadeild Háskóla Íslands, embættispróf 1997
    • Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands1991
    • Háskólinn í Reykjavík, stundakennari við lagadeild 2007 -
    • Kennari á námskeiði til öflunar réttinda til máflutnings fyrir héraðsdómi2005 -
    • Háskóli Íslands, umsjón með B.A ritgerðum við lagadeild 2006 - 2009
    • Í stjórn Lögmannafélags Íslands2020 – 2022
    • Varaformaður í stjórn Lögmannafélags Íslands2021 – 2022
    • Í nefnd um eftirlit með störfum lögreglu2017 -
    • Formaður landskjörstjórnar2013 -
    • Formaður nefndar um stofnun millidómstigs 2013 - 2015
    • Formaður yfirkjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík 2009 - 2013
    • Í stjórn LEX2007 - 2011 og 2013 -
    • Í stjórn Ríkisútvarpsins ohf.2007 - 2011
    • Í stjórn Lögfræðingafélags Íslands2004-2012, formaður 2010-2012
    • Varamaður í stjórn Persónuverndar2004 -
    • Í yfirkjörstjórn vegna kosninga til Alþingis í Reykjavík norður2003 - 2013
    • Varaformaður stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna 2001 - 2009
    • Í barnaverndarnefnd Reykjavíkur 1998 - 2006
    • Framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators 1996 - 1997
    • Formaður Orators, félags laganema1994 - 1995
    • Í stjórn Bókaútgáfu Orators1994 - 1996
    • Hefur setið í fjölda stjórna skráðra og óskráðra hlutafélaga og einkahlutafélaga
    • Löggiltur fasteigna- og skipasali

Rankings

Features ranking!

Legal 500