Flokkunarkerfi ESB – hvaða atvinnustarfsemi er græn?
Með innleiðingu reglubálka ESB hér á landi mun upplýsingagjöf íslenskra fyrirtækja taka breytingum og færast inn í samræmdan og þekktan ramma sem mun vafalaust fela í sér tækifæri fyrir bæði fyrirtæki og fjárfesta. Eva Margrét Ævarsdóttir, eigandi og lögmaður á LEX birti grein í Viðskiptablaðinu um flokkunarkerfi ESB (EU taxonomy) sem tók gildi á Íslandi 1. júní 2023, tilgang þess og áhrif á íslensk fyrirtæki.
