Beint í efni

Eva Margrét Ævarsdóttir

Lögmaður • Eigandi

Eva Margrét Ævarsdóttir hefur langa reynslu af margvíslegri ráðgjöf til fyrirtækja og hefur unnið í fjölda fjármögnunarverkefna. Hún sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði sjálfbærni (e. ESG Environment, Social, Governance) og ábyrgum fjárfestingum

Eva Margrét Ævarsdóttir er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómstólunum. Hún starfaði hjá LEX 2006-2013 og sneri aftur til LEX árið 2021. Hún hefur lokið stjórnendanámi frá IESE Business School í Barcelona og er með LL.M gráðu í Evrópurétti frá Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu auk embættisprófs frá Háskóla Íslands.

Eva Margrét hefur langa reynslu af margvíslegri ráðgjöf til fyrirtækja og hefur unnið í fjölda fjármögnunarverkefna. Hún hefur jafnframt markvisst byggt upp þekkingu og reynslu í ráðgjöf á sviði sjálfbærni og ábyrgum fjárfestingum. Hún var einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins RoadMap sem var með þeim fyrstu hér á landi sem veitti ráðgjöf á sviði sjálfbærni.

Eva Margrét sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði sjálfbærni (e. ESG – Environment, Social, Governance). Meðal verkefna eru ráðgjöf á sviði sjálfbærni og ábyrgra fjárfestinga, m.a. stefnumótun og val á mælikvörðum, innleiðing ófjárhagslegrar upplýsingagjafar, áreiðanleikakannanir og hagaðilagreiningar. Hún hefur unnið við margvíslega fjármögnun, m.a. græna skuldabréfaútgáfu. Hún hefur jafnframt flutt fjölda fyrirlestra og fræðsluerinda um sjálfbærni og ófjárhagslega upplýsingagjöf.

    • Héraðsdómstólar
    • LEX2021-
    • Arion banki, lögfræðiráðgjöf2016-2020
    • Road Map2013-2015
    • LEX2008-2013
    • Evrópuskrifstofa Samtaka Atvinnulífsins (Brussel), forstöðumaður2005-2006
    • Lögmannsstofan Lögborg, framkvæmdastjóri2001-2002
    • Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands1998
    • IESE Business School, stjórnendanám PMD diploma2021
    • Stjórnun og stefnumótun við Viðskiptadeild Háskóla Íslands2021
    • Héraðsdómslögmaður 2000
    • Katholieke Universiteit Leuven, LL.M. í evrópurétti 2005
    • Háskóli Íslands lagadeild, Cand.jur.1998
    • Námskeið hjá Háskólanum í Reykjavík í verkefna- og mannauðsstjórnun.
    • ESG og sjálfbærnistefnumótun hjá IESE Business School
    • GRI staðla námskeið
    • Háskóli Íslands, prófdómari2023
    • Kennsla á sviði sjálfbærni, umhverfismálum, mannréttindum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum hjá Opna Háskólanum í Reykjavík
    • Eva hefur skrifað greinar um sjálfbærnilöggjöf á ýmsum vettvangi.
    • Iceland Excursion Allrahanda (Gray Line), stjórn2015-2016
    • Laganefnd Lögmannafélagsins 2008-2012
    • Útgáfuráð Bókaútgáfunnar Codex1998-2004
    • Starfsmenn Alþingis, formaður2000
    • Starfsmenn Alþingis, stjórn1999-2000
    • Orators og alþjóðaritari, félag laganema í Háskóla Íslands, stjórn1995-1996