Beint í efni

Lára Herborg tók þátt í norræna höfundaréttarþinginu í Hörpu

8. september 2026

Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og eigandi á LEX, tók þátt í norræna höfundaréttarþinginu, norrænni ráðstefnu um höfundarétt sem haldin var í Hörpu í Reykjavík í síðustu viku.

Lára tók þátt í málstofunni „The Output – How to make the infringement assessment of output produced by or with the assistance of artificial intelligence“, þar sem fjallað var um höfundaréttarlegt mat á efni sem búið er til með eða með aðstoð gervigreindar.

Í erindi sínu fjallaði Lára um praktíska og sífellt mikilvægari spurningu: Ef því er haldið fram að frálag (e. output) gervigreindar brjóti gegn höfundarétti - hvernig er hægt að sanna slíkt brot fyrir dómi?

Lára Herborg fjallaði meðal annars um hvernig sýna megi fram á tengsl milli höfundaréttarvarins verks og tiltekins frálags gervigreindar, hvaða þýðingu líkindi, fyrirmæli (e. prompts), þjálfunargögn og „minni“ líkans geta haft við sönnun – og hverjir búa yfir þeim gögnum sem nauðsynleg eru til að sýna fram á mögulegt brot.

Á málstofunni sköpuðust áhugaverðar umræður meðal norrænna fræðimanna og sérfræðinga á sviði höfundaréttar um þær nýju áskoranir sem gervigreind hefur í för með sér fyrir höfundarétt og framkvæmd hans.