Beint í efni

LEX ráðgjafi Heima í tvennum viðskiptum

16. júní 2025

LEX veitti Heimum hf. („Heimar“ eða „félagið“), einu stærsta fasteignafélagi landsins, lögfræðilega ráðgjöf í tvennum nýlegum viðskiptum félagsins.

 Annars vegar er um að ræða kaup Heima á öllu hlutafé í Grósku ehf. og Gróðurhúsinu ehf. en fyrrnefnda félagið á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, sem er um 18.600 fermetra skrifstofubygging ásamt bílakjallara með 205 stæðum, samtals um 24.800 fermetrar. Meðal leigutaka í Grósku eru leikjaframleiðandinn CCP, bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið NetApp, Vísindagarðar Háskóla Íslands, World Class og Íslandsstofa. Kaupverðið var greitt með útgáfu og afhendingu á 258 milljónum nýrra hluta í Heimum en eftir kaupin er fjárfestingarfélagið Omega ehf. stærsti hluthafi félagsins með liðlega 12,5 prósenta hlut.

Hins vegar er um að ræða kaup Heima á öllu hlutafé í Tryggvagötu ehf., eiganda fasteignanna að Tryggvagötu 14 og Tryggvagötu 10 í miðborg Reykjavík, en í fasteignunum er rekið Exeter hótel, 106 herbergja fjögurra stjörnu hótel, auk skrifstofuhúsnæðis. Kaupverðið var greitt með reiðufé og yfirtöku skulda en heildarvirði viðskiptanna nam kr. 6.375.000.000.

LEX veitti Heimum lagalega ráðgjöf við alla þætti umræddra viðskipta, svo sem í tengslum við samningaviðræður, skjalagerð og samskipti við Samkeppniseftirlitið.

Um leið og við þökkum fyrir farsælt samstarf óskum við Heimum og seljendum til hamingju með viðskiptin.

Heimar