Nýir eigendur hjá LEX lögmannsstofu
Lögmennirnir Árni Freyr Sigurðsson, Fjölnir Ólafsson og Hjalti Geir Erlendsson gengu til liðs við eigendahóp LEX lögmannsstofu þann 10. apríl sl., en þeir hafa allir gegnt stöðu verkefnastjóra hjá stofunni frá árinu 2023.
Árni Freyr Sigurðsson er héraðsdómslögmaður með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af ráðgjöf og úrlausn ágreiningsmála, einkum á sviði félagaréttar, samninga- og kröfuréttar, við kaup og sölu fyrirtækja, fjármögnun fyrirtækja, sjóðalöggjafar og verðbréfamarkaðsréttar. Hann er með lagapróf frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá LEX frá árinu 2018. Árni Freyr er stundakennari við Háskólann í Reykjavík í kaupum og sölu fyrirtækja og hefur verið metinn sem “Leading Associate” af alþjóðlega matsfyrirtækinu Legal 500 og “Rising Star” af matsfyrirtækinu IFLR1000.
Fjölnir Ólafsson er Landsréttarlögmaður með lagapróf frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá LEX frá árinu 2018. Fjölnir sérhæfir sig í málflutningi og úrlausn ágreiningsmála og hefur einkum sinnt verkefnum á sviði samninga- og kröfuréttar, samkeppnisréttar, stjórnsýsluréttar og verktaka- og útboðsréttar. Hann var aðstoðarmaður dómara við Landsrétt árið 2020 og er stundakennari í einkamála- og sakamálaréttarfari við Háskóla Íslands.
Hjalti Geir Erlendsson er héraðsdómslögmaður með lagapróf frá Háskóla Íslands og LL.M.-gráðu frá Columbia-háskóla í New York. Hann hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf og úrlausn ágreiningsmála á sviði stjórnsýsluréttar, eigna-, orku-, auðlinda- og umhverfisréttar og hefur m.a. komið að umfangsmiklum málum í tengslum við innviðauppbyggingu, orkuframleiðslu og auðlindanýtingu. Þá býr hann yfir yfirgripsmikilli þekkingu á Evrópu- og EES-rétti, stjórnskipunarrétti og mannréttindum. Hjalti Geir starfaði áður hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel og umboðsmanni Alþingis. Hann sinnir kennslu í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og situr í stjórn Varðbergs.




