Beint í efni

Kara Borg Fannarsdóttir

Lögmaður • Fulltrúi

Kara Borg Fannarsdóttir útskrifaðist með B.A próf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2008 og meistaragráðu í lögum frá sama skóla árið 2010. Með námi starfaði Kara hjá Toyota á Íslandi og síðan hjá Gjaldskilum, innheimtufélagi.

Kara hóf störf hjá LEX að loknu laganámi árið 2010. Hún öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2012. Kara hefur fengist við verkefni á ýmsum sviðum lögfræðinnar s.s. á sviði gjaldþrotaréttar, fullnustu- og skuldaskilaréttar, skaðabótaréttar, erfðaréttar, stjórnsýsluréttar og félagaréttar auk málflutnings fyrir héraðsdómstólum.

    • Héraðsdómstólar
    • LEX2010-
    • Gjaldskil innheimtufélag, með námi2009-2010
    • Toyota á Íslandi, með námi2006-2008
    • Héraðsdómslögmaður2012
    • Háskóli Íslands, meistaragráða2010
    • Háskóli Íslands, B.A. 2008
    • Kvennaskólanum í Reykjavík2005
    • Kennari í skaðabótarétti á háskólastigi 2015-2016