Þórhallur Bergmann
Þórhallur Bergmann er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hann hóf störf hjá LEX 2006 og hefur starfað óslitið hjá félaginu síðan. Þórhallur hefur í störfum sínum á LEX lagt megináherslu á skuldaskilarétt og hefur yfirumsjón með fagsviði LEX á því réttarsviði.
Verkefni Þórhalls hafa einkum verið fólgin í skiptastjórn þrotabúa og fjárhagslegri endurskipulagningu, auk þess sem hann hefur annast hagsmunagæslu fyrir kröfuhafa, þrotabú og riftunarþola. Þá hefur hann sinnt ráðgjöf á þessu réttarsviði, m.a. til fjármálastofnana, erlendra lögaðila og skiptastjóra þrotabúa. Þórhallur hefur jafnframt sérþekkingu á sviði kröfuréttar, fasteignakauparéttar og verktakaréttar, auk þess sem hann er reglulega skipaður skiptastjóri við opinber skipti á dánarbúum.
Þórhallur er aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem hann hefur verið stundakennari í skuldaskilarétti allt frá 2015. Þá hefur hann annast kennslu / prófun í skiptastjórn á námskeiði til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómstólum og haldið námskeið á vegum LMFÍ á sviði skuldaskilaréttar.
- Héraðsdómstólar
- LEX2006-
- Héraðsdómslögmaður2007
- Háskóla Íslands, cand. jur.2007
- Skiptinám við Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu 2005
- Burtfararpróf í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík2001
- Píanókennarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík2000
- Háskólinn í Reykjavík, aðjúnkt við lagadeild2024-
- Stundakennari í skuldaskilarétti
- Háskólinn í Reykjavík, leiðbeinandi meistararitgerða við lagadeild
- Kennsla og prófun í skiptastjórn þrotabúa á námskeiði til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómstólum2013-
- Námskeið á vegum LMFÍ á sviði gjaldþrotaréttar, m.a. um endurheimt verðmæta við gjaldþrotaskipti
- Þjóðréttarskyldur ríkja á sviði alþjóðlegs refsiréttar. Glæpir gegn mannkyni – íslensk löggjöf og laganauðsyn. Úlfljótur, 60(4), bls. 779 – 822.2007
- Faglegur yfirlestur og fræðileg ráðgjöf á sviði refsiréttar við gerð Lögfræðiorðabókar2008