Lára Herborg Ólafsdóttir
Lára er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði upplýsingatækniréttar, hugverkaréttar og persónuverndar og hefur jafnframt markað sér skýra sérstöðu á sviði útboðs- og verktakaréttar með ráðgjöf í flóknum og umfangsmiklum verkefnum, auk stjórnsýsluréttar. Lára hefur sinnt ráðgjöf til fjölmargra fyrirtækja, sveitarfélaga og opinberra stofnana um árabil.
Hún hefur m.a. séð um samninga um gerð, dreifingu og kaup á hugbúnaðarkerfum og þróunarsamninga. Hún hefur haft umsjón með fjölmörgum umfangsmiklum lögfræðilegum úttektum á upplýsingatæknikerfum fyrirtækja og opinberra aðila. Þá hefur hún aðstoðað fyrirtæki og stofnanir við reglufylgni við innleiðingu gervigreindarlausna. Lára hefur að auki yfirgripsmikla þekkingu á sviði heilbrigðistækni og hefur aðstoðað mörg fyrirtæki á því sviði.
Á sviði verktaka- og útboðsréttar réttar hefur Lára komið að umfangsmiklum og flóknum verkframkvæmdum og veitt ráðgjöf á öllum stigum verkefna. Hún hefur m.a. veitt ráðgjöf við undirbúning og gerð verksamninga, þá sérstaklega í tengslum við opinber innkaup og stærri verkframkvæmdir. Hún hefur auk þess víðtæka reynslu af greiningu á réttarstöðu aðila við verktafir, kröfur um auka- og viðbótarverk, vanefndir og ágreining um verkframkvæmdir og ábyrgðarskiptingu. Þá hefur Lára reynslu af úrlausn deilumála sem rísa í tengslum við verkframkvæmdir, bæði á samningsstigi og síðar í ferlinu. Lára hefur jafnframt haldið fyrirlestra hérlendis og erlendis á sviði verktaka- og útboðsréttar, auk þess sem hún hefur ritað greinar á sviði útboðsréttar.
Þá sinnir Lára málflutningi fyrir héraðsdómstólum.
Lára hefur að auki skrifað fjölmargar greinar og haldið námskeið og fyrirlestra um lögfræðileg álitaefni í tengslum við net- og upplýsingaöryggi, gervigreind og persónuvernd – bæði fyrir opinbera aðila og fyrirtæki. Lára er aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík og kennir þar m.a. tækni- og tölvurétt. Lára situr í laganefnd Lögmannafélags Íslands, er varamaður í stjórn Persónuverndar og gegnir stöðu fræðilegs ritstjóra Fons Juris sem er leiðandi bókaútgáfa á sviði lögfræði.
Lára hóf störf á LEX 2019 og varð meðeigandi 2020.
- Héraðsdómstólar
- LEX2019-
- DLA Piper, Lúxemborg2018-2019
- Juris lögmannsstofa2011-2018
- Arion banki, lögfræðiráðgjöf2011
- Landsbanki Íslands hf., slitastjórn2009-2011
- UC Berkeley, LL.M. gráða (tækniréttur2018
- Héraðsdómslögmaður2015
- Háskólinn í Reykjavík, ML2013
- Háskólinn í Reykjavík, B.A. í lögfræði 2011
- Menntaskólinn í Reykjavík2007
- Háskólinn í Reykjavík, aðjúnkt2023-
- Háskólinn í Reykjavík, umsjón með tækni- og tölvurétti2019-
- Háskólinn í Reykjavík, umsjón með fjártæknirétti2021-
- Háskólinn í Reykjavík, kennsla í MBA námi
- Háskólinn í Reykjavík, umsjón með meistararitgerðum á sviði lögfræði
- Háskólinn í Reykjavík, kennsla í aðferðafræði við lagadeild 2011-2017
- Háskólinn í Reykjavík, kennsla í samninga- og verktakarétti í MPM námi 2013
- Artificial Intelligence Law Over Borders (Comparative law Guide), The Global Legal Post 2023, meðhöfundur.2023
- Meðhöfundur alþjóðlegrar skýrslu Technology Governance in a time of crisis, COVID-19 related decision support, útg. af Human Technology Foundation í júlí 20202020
- Gervigreind og höfundaréttur, Tímarit lögfræðinga, (2019). 2019
- GDPR in the world of smart devices, ACE
- Persónuvernd, varamaður í stjórn2023-
- LEX, stjórn2021-
- Lögmannafélag Íslands, laganefnd2020-
- Fons Juris, fræðilegur ritstjóri 2019-
- AFS á Íslandi, stjórn 2015-2017
- Berkeley Technology Law Journal, aðstoðarritstjóri 2017-2018
- Berkeley Information Privacy Law Association (BIPLA), stjórn 2017-2018

