Guðrún Sólveig Sigríðardóttir
Guðrún hóf störf sem fulltrúi á LEX í maí 2023, eftir að hafa starfað þar sem laganemi samhliða námi frá árinu 2021. Guðrún útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði í maí 2023 með hæstu einkunn og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum í maí 2024.
Í störfum sínum hjá LEX sinnir Guðrún einkum málum á sviði eignarréttar, fasteignakauparéttar, orku- og auðlindaréttar, verktakaréttar, stjórnsýsluréttar og sjóréttar. Guðrún hefur komið að fjölda ágreiningsmála fyrir dómstólum og úrskurðarnefndum ásamt því að veita sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum ráðgjöf um ýmis málefni.
- Héraðsdómstólar
- LEX2021-
- Lagastofnun Háskóla Íslands - rannsóknaraðstoð á sviði eignarréttar fyrir 2020-2023
- Háskóli Íslands, mag. jur.2023
- Háskóli Íslands, BA í lögfræði2021
- Menntaskólinn í Reykjavík2017
- Háskóli Íslands, stundakennari í fasteignum og fasteignarréttindum við lagadeild 2023
- Háskóli Íslands, aðstoðarkennari í eignarrétti II við lagadeild 2022
- Þjálfari í Norrænu málflutningskeppninni2024
- Lögfræðiaðstoð Orator2020-2021