Beint í efni

Erla S. Árnadóttir

Lögmaður • Ráðgefandi

Erla er einn af fremstu sérfræðingum landsins á sviði hugverkaréttar og upplýsingatækniréttar. Hún hefur m.a. séð um gerð samninga um smíði og dreifingu hugbúnaðar og um margvíslega þjónustu á sviði upplýsingatækni, sinnt hagsmunagæslu fyrir fjölmörg fyrirtæki, opinberar stofnanir og einstaklinga um nýtingu hugverka, séð um rekstur fjölda dómsmála vegna brota á höfundarétti og vörumerkjarétti og veitt ráðgjöf til sprotafyrirtækja af ýmsum toga.

Erla hefur einnig veitt ráðgjöfvarðandi persónverndarmálefni, m.a. til stærstu fyrirtækja landsins og til erlendra aðila og hefur gegnt hlutverki persónuverndarfulltrúa fyrir nokkra aðila. Þá hefur Erla sinnt hagsmunagæslu og ráðgjöf fyrir fjölmörg lyfjafyrirtæki.Erla á sæti í höfundaréttarnefnd menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hún hefur um árabil sinnt kennslu í höfundarétti við Háskóla Íslands og verið prófdómari í hugverka- og upplýsingatæknirétti ásamt því að rita fræðigreinar og halda fyrirlestra um hugverkaréttindi og upplýsingatæknirétt.