Lára Herborg Ólafsdóttir

Lögmaður, LL.M. - Eigandi

lara@lex.is

Lára Herborg hóf störf hjá LEX í febrúar 2019. Hún er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómsstólum. Hún lauk LL.M. gráðu í tæknirétti frá UC Berkeley í Bandaríkjunum og starfaði um skeið á sviði tækni- og hugverkaréttar á alþjóðlegri lögmannsstofu í Lúxemborg.

  • Lára Herborg hóf störf hjá LEX í febrúar 2019. Hún er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómsstólum. Hún lauk LL.M. gráðu í tæknirétti frá UC Berkeley í Bandaríkjunum og starfaði um skeið á sviði tækni- og hugverkaréttar á alþjóðlegri lögmannsstofu í Lúxemborg.

Lára er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði upplýsingatækniréttar, hugverkaréttar og persónuverndar, auk þess að búa yfir víðtækri reynslu á sviði útboðs- og verktakaréttar, heilbrigðisréttar og stjórnsýsluréttar. Lára hefur hefur sinnt ráðgjöf til fjölmargra fyrirtækja, sveitarfélaga og opinberra stofnana um árabil.

Hún hefur m.a. séð um samninga um gerð, dreifingu og kaup á hugbúnaðarkerfum og þróunarsamninga. Hún hefur haft umsjón með fjölmörgum umfangsmiklum MÁP úttektum á upplýsingatæknikerfum fyrirtækja og opinberra aðila. Þá hefur Lára veitt sértæka ráðgjöf varðandi upplýsingaöryggi, þ.m.t. flutning persónuupplýsinga, s.s. fyrir tilstilli skýjalausna. Lára hefur að auki yfirgripsmikla þekkingu á sviði heilbrigðistækni og hefur aðstoðað mörg fyrirtæki á því sviði.

Þá hefur Lára að auki skrifað fjölmargar greinar og haldið námskeið og fyrirlestra um álitaefni í tengslum við net- og upplýsingaöryggi, gervigreind og persónuvernd – bæði fyrir opinbera aðila og fyrirtæki. Þá hefur hún gegnt stöðu persónuverndarfulltrúa fyrir ríkisstofnanir, stærri fyrirtæki og einnig nýsköpunarfyrirtæki.

Málflutningsréttindi

  • Héraðsdómstólar

Starfsferill

  • LEX síðan 2019
  • DLA Piper, Lúxemborg, 2018-2019
  • Juris lögmannsstofa, 2011-2018
  • Arion banki lögfræðiráðgjöf, 2011
  • Landsbanki Íslands hf., slitastjórn, 2009-2011

Menntun

  • LL.M. gráða (tækniréttur) frá UC Berkeley, 2018.
  • Héraðsdómslögmaður 2015
  • ML frá Háskólanum í Reykjavík 2013
  • B.A. í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2011
  • Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 2007

Erlend tungumál

  • Enska
  • Danska
  • Þýska

Kennsla og önnur sambærileg störf

  • Aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík frá 2023
    • Umsjón með tækni- og tölvurétti frá 2019
    • Umsjón með fjártæknirétti frá 2021
    • Kennsla í MBA námi
  • Umsjón með meistararitgerðum á sviði lögfræði
  • Aðstoðarkennsla í aðferðarfræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík, 2011 – 2017
  • Aðstoðarkennsla í samninga- og verktakarétti í MPM námi við Háskólann í Reykjavík, 2013.

Ritstörf

Félags- og trúnaðarstörf

  • Varamaður í stjórn Persónuverndar frá 2023
  • Í stjórn LEX frá 2021
  • Í laganefnd Lögmannafélags Íslands frá 2020
  • Fræðilegur ritstjóri Fons Juris frá 2019
  • Stjórn AFS á Íslandi frá 2015-2017
  • Aðstoðarritstjóri Berkeley Technology Law Journal, 2017-2018
  • Í stjórn Berkeley Information Privacy Law Association (BIPLA), 2017-2018