Helgi Þór Þorsteinsson

Lögmaður, LL.M. - Ráðgjafi

helgithor@lex.is

Helgi Þór hóf störf hjá LEX fyrir útskrift hans úr lagadeild á árinu 2007 og hefur starfað hjá félaginu alla tíð síðan. Í starfi sínu hefur Helgi Þór lagt megináherslu á ráðgjöf við fjármögnun, fjármagnsmarkaði og félagarétt. Helgi Þór hefur komið að miklum fjölda lánveitinga og skuldabréfaútgáfa.

Helgi Þór Þorsteinsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Helgi Þór hóf störf hjá LEX fyrir útskrift hans úr lagadeild á árinu 2007 og hefur starfað hjá félaginu alla tíð síðan. Helgi Þór var í námsleyfi frá LEX 2011-2012 þar sem hann stundaði LL.M. nám í alþjóðlegum fjármálarétti við lagadeild King‘s College London í Englandi.

Stærstan hluta starfsferils síns hefur Helgi Þór starfað sem hluti af banka- og veðréttarteymi LEX. Í starfi sínu hefur Helgi Þór lagt megináherslu á ráðgjöf við fjármögnun, fjármagnsmarkaði og félagarétt. Helgi Þór hefur komið að miklum fjölda lánveitinga og skuldabréfaútgáfa, auk þess að hafa veitt ráðgjöf um skipulag, fjármögnun, og kaup og sölur fyrirtækja. Þá hefur Helgi Þór reynslu af málflutningi fyrir héraðsdómi, auk þess sem hann hefur komið að rekstri mála fyrir EFTA-dómstólnum.

Málflutningsréttindi

  • Héraðsdómstólar

Starfsferill

  • LEX lögmannsstofa síðan 2006

Menntun

  • LL.M. gráða frá King‘s College London 2012
  • Héraðsdómslögmaður 2007
  • Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands 2007
  • Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands 2001

Erlend tungumál

  • Enska

Kennsla

  • Umsjónarmaður með BA-ritgerðum á sviði veðréttar við lagadeild Háskóla Íslands 2013-2014
  • Stundakennari í meistaranámi í endurskoðun og reikningsskilum (M.Acc.) við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 2008-2010

Félags- og trúnaðarstörf

  • Formaður Blæðarafélags Íslands frá 2015