Ólafur Haraldsson

Ólafur Haraldsson

Lögmaður - Eigandi

olafur@lex.is

Ólafur Haraldsson er sérfræðingur í banka- og fjármálarétti og fyrirtækjaráðgjöf, einkum varðandi fjármögnun fyrirtækja, kaup á félögum (M&A) og endurskipulagningu.

Ólafur Haraldsson er sérfræðingur í banka- og fjármálarétti og fyrirtækjaráðgjöf, einkum varðandi fjármögnun fyrirtækja, kaup á félögum (M&A) og endurskipulagningu.

Ólafur hóf störf hjá Málflutningsskrifstofunni Suðurlandsbraut 4A að loknu lagaprófi árið 1992 en hóf svo eigin rekstur á árinu 1995. Hann gekk til liðs við LEX á árinu 1999 og hefur starfað þar óslitið síðan. Ólafur hefur yfirgripsmikla starfsreynslu á sínu sérfræðisviði og hefur um árabil sinnt ráðgjöf til innlendra jafnt sem erlendra fjármálafyrirtækja. Hann hefur auk þess flutt fjölda dómsmála fyrir héraðsdómi jafnt sem Hæstarétti Íslands.

Ólafur hefur samhliða starfi sínu sem lögmaður sinnt kennslu við Háskóla Reykjavíkur sem stundakennari í veðrétti og á námskeiði um kaup og samruna á félögum (M&A).

Málflutningsréttindi

  • Hæstiréttur
  • Landsréttur
  • Héraðsdómstólar

Starfsferill

  • Málflutningsskrifstofan Suðurlandsbraut 4A 1992 -1995
  • Eigin rekstur 1995 – 1999
  • LEX lögmannsstofa síðan 1999

Menntun

  • Hæstaréttarlögmaður 2002
  • Héraðsdómslögmaður 1993
  • Háskóli Íslands, mag. jur. 1992

Erlend tungumál

  • Enska
  • Danska

Kennsla

  • Stundakennari í eignarrétti við lagadeild Háskóla Íslands frá 2003
  • Stundakennari í kaup og sala fyrirtækja (M&A) frá 2008