María Kristjánsdóttir

Fréttir

LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX

Fréttir

ÚTGÁFA

LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa við­skiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir mál­flytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.

María Kristjánsdóttir nýr framkvæmdastjóri GH Sigurgeirsson Intellectual Property

28. janúar, 2021

María Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri GH Sigurgeirsson Intellectual Property, sem er sjálfstætt dótturfélag LEX á sviði vörumerkja- og einkaleyfaréttar.

María lauk ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2007 og LL.M. gráðu í alþjóðaviðskiptalögfræði frá Fordham háskóla í New York 2008. María er lögmaður með leyfi til reksturs mála fyrir héraðsdómi og hefur starfað hjá LEX frá árinu 2008, aðallega á sviði hugverkaréttar, samkeppnisréttar og persónuverndarmála. María hefur samhliða störfum sínum hjá LEX sinnt störfum fyrir GH Sigurgeirsson frá haustinu 2018 þegar LEX tók yfir starfsemi fyrirtækisins, þar af sem aðstoðarframkvæmdastjóri frá mars 2019.

María tekur við framkvæmdastjórastöðunni af Huldu Árnadóttur, sem tók við embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness fyrr í mánuðinum.

Aftur í fréttasafn