Vefkökustefna LEX

Stefnu þessari er ætlað að upplýsa notendur vefsíðunnar www.lex.is (einnig vísað til sem „þín“) um notkun LEX (einnig vísað til sem „okkar“) á vefkökum til samræmis við lög nr. 70/2022 um fjarskipti.

Hvað eru vefkökur?

Vefkökur gera vefsíðum kleift að þekkja tölvur og snjalltæki notenda og því er vefkaka eins konar stafrænt merki sem man hvar þú hefur verið á vefnum. Vefkökur eru textaskrár sem netvafrinn þinn vistar á tölvunni þinni sé netvafrinn þinn stilltur til að samþykkja notkun á vefkökum. Vefkökurnar gera okkur kleift að muna ákveðnar stillingar hjá notanda til að bæta notendaupplifun og fá tölfræðiupplýsingar um notkun á vefsíðu okkar.

Gerður er greinarmunur á lotukökum (e. session cookies) og viðvarandi vefkökum (e. persistent cookies). Lotukökur gera vefsíðu kleift að tengjast aðgerðum notanda á meðan hann er á síðunni. Lotukökur eyðast almennt þegar notandi fer af síðunni og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vefkökur vistast hins vegar á tölvu notanda og muna þannig val eða aðgerðir notenda á síðunni. LEX notast bæði við lotukökur og viðvarandi vefkökur.

Kökur fyrsta aðila

Þessar kökur verða til á því vefsvæði sem þú heimsækir (e. first-party cookies). Sumar af þessum kökum eru nauðsynlegar fyrir fullna virkni vefsíðna og til þess að þú getir notað allt sem í boði er á síðunum. Þar sem slíkar kökur eru nauðsynlegar er ekki hægt að hafna þeim án þess að skerða virkni síðunnar.

Kökur þriðja aðila

Vefkökur sem verða til á öðrum síðum en síðunni sem þú ert að heimsækja (e. third-party cookies). Kökur þriðja aðila gera aðilum kleift að þekkja tækið þitt aftur, bæði þegar þú heimsækir vefsvæðið sem og önnur vefsvæði.

Vefkökur á vefsvæði LEX

Við notum vefkökur til að auðvelda þér að nota vefsvæðið. Vefkökur sjá til þess að vefsvæðið geti munað eftir þér til að þú þurfir ekki að endurtaka valið í hvert sinn sem þú heimsækir vefsíðuna. Kökur eru einnig notaðar til að safna tölfræðilegum upplýsingum og öðrum upplýsingum um fjölda notenda á vefsvæðinu og þær vefsíður sem þeir fara á.

Við notum þjónustu Google Analytics til að greina umferð á vefsíðu okkar og í þeim tilgangi að aðgreina þig frá öðrum notendum á vefsíðu LEX. Þjónustan felur í sér að upplýsingum er safnað, sbr. nánar hér að neðan og skýrsla útbúin í kjölfarið um þróun á vefsvæði okkar, án þess að greint sé þar frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics býr til bæði „viðvarandi“ kökur sem og „lotukökur“.

Þær vefkökur sem finna má á vefsíðu LEX eru eftirfarandi:

LEX getur frá einum tíma til annars breytt stefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða vegna breytinga á því hvernig við notum vefkökur.

Fyrir nánari upplýsingar um vinnslu LEX á persónuupplýsingum vísast til persónuverndarstefnu félagsins sem aðgengileg er hér.