Fréttir

LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX

Fréttir

ÚTGÁFA

LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa við­skiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir mál­flytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.

Dómur fellur Ferskum kjötvörum í vil

18. nóvember, 2016

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað þann 18. nóvember s.l. upp dóm í máli Ferskra kjötvara ehf. gegn íslenska ríkinu. Í stuttu máli voru helstu málavextir þeir að fyrirtækið Ferskar kjötvörur, dótturfélag Haga hf., flutti inn 83 kíló af nautalundum. Íslenska ríkið synjaði Ferskum kjötvörum um heimild til þess að flytja inn framangreinda vöru nema fyrir lægi vottorð um að varan hefði verið fryst í 30 daga. Ferskar kjötvörur voru ósáttar við þá kröfu og báru málið undir dómstóla í formi skaðabótamáls. Í niðurstöðu héraðsdóms var fallist á að um samningsbrot gagnvart EES-samningnum væri að ræða og að Ísland hefði ekki fullnægt skuldbindingum sínum gagnvart honum. Var íslenska ríkið því dæmt skaðabótaskylt og var í því efni meðal annars stuðst við ráðgefandi álit EFTA dómstólsins.

Arnar Þór Stefánsson hrl. og eigandi á LEX flutti mál þetta f.h. Ferskra kjötvara.

Aftur í fréttasafn