Fréttir

LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX

Fréttir

ÚTGÁFA

LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa við­skiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir mál­flytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.

Máli ÁTVR gegn Sante vísað frá

22. mars, 2022

Þann 18. mars sl. vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur frá málum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) gegn Sante ehf., Santewines SAS og Arnari Sigurðssyni. Gerði ÁTVR þær dómkröfur að hinum stefndu yrði gert að láta af þátttöku í smásölu áfengis í vefverslun og að viðurkennd yrði bótaskylda stefndu vegna tjóns sem stefndi hefði beðið vegna þáttöku þeirra í smásölu á áfengi í vefverslun. Dómari hafnaði þessum málatilbúnaði og taldi að ÁTVR hefði ekki lögbundna hagsmuni af því að stöðva vefsölu fyrirtækjanna með áfengi og það væri í verkahring fjármálaráðherra að ákveða hvernig áfengisstefnunni yrði framfylgt, en ekki ÁTVR. Birgir Már Björnsson, lögmaður og eigandi á LEX gætti hagsmuna Sante, Santewines og Arnars Sigurðssonar og var Fjölnir Ólafsson, lögmaður og fulltrúi honum til aðstoðar. ÁTVR var einnig dæmt til að greiða umbjóðendum LEX 1,65 milljón króna í málskostnað.

Aftur í fréttasafn