Erla S. Árnadóttir

Erla S. Árnadóttir

Lögmaður - Eigandi

erlas@lex.is

Erla S. Árnadóttir, hæstaréttarlögmaður, hóf störf hjá LEX árið 2000 en hefur starfað við lögmennsku frá árinu 1984. Erla er einn af fremstu sérfræðingum landsins á sviði hugverkaréttar og upplýsingatækniréttar.

Erla S. Árnadóttir, hæstaréttarlögmaður, hóf störf hjá LEX árið 2000 en hefur starfað við lögmennsku frá árinu 1984. Erla stundaði framhaldsnám í félagarétti og höfundarétti við lagadeild Oslóarháskóla veturinn 1983–1984 og var styrkþegi við Max Planck Institut für Patent-, Urheber- und Wettbewerbsrecht í München veturinn 1988–1989.
Erla er einn af fremstu sérfræðingum landsins á sviði hugverkaréttar og upplýsingatækniréttar. Hún hefur m.a. séð um gerð samninga um smíði og dreifingu hugbúnaðar, um þjónustu á sviði upplýsingatækni, hagsmunagæslu fyrir fjölmörg fyrirtæki og opinberar stofnanir um nýtingu hugverka, séð um rekstur dómsmála vegna brota á höfundarétti og vörumerkjarétti, veitt ráðgjöf til sprotafyrirtækja af ýmsum toga og ráðgjöf varðandi persónverndarmálefni.
Erla á sæti í höfundaréttarnefnd mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Hún hefur um árabil sinnt kennslu í höfundarétti við Háskóla Íslands og hefur ritað fræðigreinar og haldið fyrirlestra um hugverkaréttindi.

Málflutningsréttindi

  • Hæstiréttur
  • Landsréttur
  • Héraðsdómstólar

Starfsferill

  • LEX lögmannstofa síðan 2000
  • KPMG og KPMG lögmenn 1984 – 2000

Menntun

  • Hæstaréttarlögmaður 1994
  • Héraðsdómslögmaður 1986
  • Háskóli Íslands, cand. jur. 1983

Erlend tungumál

  • Enska
  • Danska
  • Norska
  • Þýska

Kennsla

  • Stundakennari í höfundarétti við lagadeild Háskóla Íslands frá 1997
  • Prófdómari í upplýsingatæknirétti við Háskóla Íslands frá 2004

Ritstörf

  • Erla S. Árnadóttir (1985). Tölvur og höfundaréttur. Tímarit lögfræðinga, 35(2), 115 – 124.
  • Erla S. Árnadóttir (1990). Hugbúnaður: skilyrði og umfang höfundaréttarverndar. Tímarit lögfræðinga, 40(3), 148 – 174.
  • Erla S. Árnadóttir (1990). Datenverarbeitung und Urheberrecht in Dänemark – die erste nordische Urheberrchtsnovelle im Vergleich, GRUR International Teil, 39(4), 290 – 299
  • Erla S. Árnadóttir (2004). Höfundarréttur og afdrif falsaðra myndlistarverka, Ritið (3), bls. 123 – 135.
  • Erla S. Árnadóttir (2015). Developments in Iceland since the XIV Nordic Copyright Symposium in 2015, Nordiskt Immaterialt Rättsskydd, 84(6), 594 – 598
  • Peter Schønning, Erla S. Árnadóttir, Torkil V. Rasmussen og Jens Virgar Jakobsen (2016). Strejftog gennem den vestnordiske ophavsret. Nordiskt Immaterialt Rättsskydd, 85(4), 390 – 415
  • Erla S. Árnadóttir. (2006). Iceland. Í Peter Schimanek og Frank-Rainer Töpfer, Remedies and Public Procurement Laws in Europe. (74 – 79). Berlín: Baker & McKenzie.
  • Erla S. Árnadóttir. (2008) Immaterialrettens særlige processformer. Í Mads Bryde Andersen og Jonas Christoffersen, Det 38. nordiske Juristmøde i København 21. – 23. august 2008 (343 – 349). Kaupmannahöfn: Den danske styrelse for Det nordiske Juristmøde.
  • Erla S. Árnadóttir, Lena Markusardóttir og María Kristjánsdóttir. (2019). Iceland – Health and Pharma Overview. OneTrust DataGuidance database.  – https://www.lex.is/wp-content/uploads/2019/11/Iceland-Health-and-Pharma-Overview-_-DataGuidance.pdf

Félags- og trúnaðarstörf

  • Stjórn Lögfræðingafélags Íslands 1989-1991
  • Framkvæmdarstjóri Tímarits lögfræðinga 1990-1991
  • Stjórn námssjóðs Lögmannafélags Íslands 1999-2018
  • Gerðardómur Fjölís 1991-1993
  • Stjórn Höfundaréttarfélag Íslands frá 2006
  • Stjórn Félags um vátryggingarétt 2002 – 2008
  • Varamaður í stjórn Persónuverndar 2001 (áður Tölvunefnd frá 1990) – 2004
  • Formaður áfrýjunarnefndar í vörumerkja og einkaleyfamálum (nú áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda) 1991-2000
  • Höfundarréttarnefnd frá 2006 (varamaður frá 1995)
  • Bótanefnd samkvæmt lögum nr. 69/1995 1996 – 2006
  • Formaður kærunefndar jafnréttismála frá 2011 – 2018 (varamaður frá 1997)
  • Formaður siðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands 1997 – 2009
  • Áfrýjunarnefnd samkeppnismála 2000-2009 (varamaður frá 1998)
  • Í varastjórn Listasafns Íslands frá 2010 – 2012
  • Varamaður í endurupptökunefnd 2018 – 2020