Gjaldskil ehf. - innheimtufyrirtæki
Innheimtufyrirtækið Gjaldskil ehf. var stofnað árið 1986. Gjaldskil er dótturfyrirtæki LEX og er rekið í nánum tengslum við lögmannsstofuna sem er ein sú stærsta hér á landi.
Starfsfólk Gjaldskila sérhæfir sig í heildarlausnum við innheimtu hvers konar vanskilakrafna, m.a. fyrir fyrirtæki, húsfélög, sveitarfélög, einstaklinga og hið opinbera. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu.
Starfsfólk Gjaldskila og viðskiptavinir fyrirtækisins hafa aðgang að breiðum hópi lögmanna sem veita faglega ráðgjöf þegar þörf er á. Þannig njóta viðskiptavinir fyrirtækisins ávallt bestu þjónustu sem völ er á við vinnslu mála sinna.
Innheimtuferill Gjaldskila er hannaður sérstaklega fyrir hvern og einn viðskiptavin, allt frá meðhöndlun smáskulda og milliinnheimtukerfis til lögfræðilegrar innheimtu og kröfuvaktar þannig að sem bestur árangur náist hverju sinni.
Milliinnheimta:
Milliinnheimta er millistig fruminnheimtu og lögfræðiinnheimtu. Kostir þess eru ótvíræðir og miða allir að því að bæta skilvirkni innheimtunnar
• Bein samskipti við þjónustubanka kröfuhafa
• Greiðsluseðill virkur í banka allan tímann
• Bréf fara út samdægurs
• Innheimtar fjárhæðir fara inn á reikning kröfuhafa í viðskiptabanka hans
• Enginn kostnaður fellur á kröfuhafa
• Umsaminn, fastur lágmarkskostnaður fellur á skuldara
• Kröfuhafi hefur á hverjum tíma aðgang að tölvukerfi Gjaldskila til að fylgjast með stöðu krafna
• Skilvirkt uppgjör
Lögfræðiinnheimta:
Lögfræðiinnheimta tekur við að millinnheimtu lokinni
• Innheimtuferill ákveðinn með kröfuhafa
• Kröfubréf sent út samdægurs
• Gjaldskrá fyrirliggjandi
• Hver krafa metin fyrir sig með tilliti til árangurs og kostnaðar
• Kröfuhafi hefur á hverjum tíma aðgang að tölvukerfi Gjaldskila til að fylgjast með stöðu krafna
• Skilvirkt uppgjör
Upplýsingar um meðhöndlun smáskulda og kröfuvakt er að finna á heimasíðu Gjaldskila, gjaldskil.is.
Gjaldskil veitir viðskiptavinum sínum greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu mála á hverjum tíma m.a. í gegnum tölvukerfi fyrirtækisins og er ávallt reiðubúið til samvinnu.
Starfsfólk Gjaldskila er tilbúið að kynna nánar þjónustu sína og setja upp innheimtuferla án allra skuldbindinga þar að lútandi. Ef áhugi er fyrir hendi hafið samband í síma 590 2650.
| Nafn | Starfsheiti | Netfang |
|---|
| Anna Sigurjónsdóttir | innheimtufulltrúi | anna@lex.is |
Anna Sigurjónsdóttir
Starfsheiti: innheimtufulltrúi
Netfang: anna@lex.isAnna er fædd í Skálholtsvík í Hrútafirði 1953. Menntun:Gagnfræðingur frá Héraðsskólanum að Reykjum Hrútafirði 1970.
Ýmiss námskeið í endurmenntun, í tölvum, ensku og fl. Starfsferill:Gjaldkeri og svo fulltrúi hjá Íslandspósti hf frá 1990.
Afgreiðslustjóri hjá Íslandspósti hf frá 2000. Félags- og trúnaðarstörf:Í stjórn USVH 1990-1997.
Í stjórn Frjálsíþróttadeildar ÍR 1998-2001. Anna hóf störf hjá Gjaldskilum í desember 2006. |
| Kara Borg Fannarsdóttir | lögfræðingur | kara@lex.is |
Kara Borg Fannarsdóttir
Starfsheiti: lögfræðingur
Netfang: kara@lex.is |
| Sólborg Borgarsdóttir | skrifstofustjóri | solborg@lex.is |
Sólborg Borgarsdóttir
Starfsheiti: skrifstofustjóri
Netfang: solborg@lex.is Sólborg er fædd 1975. |
Aðgangur kröfuhafa að innheimtukerfi Gjaldskila ehf.