Um LEX

LEX í núverandi mynd á sér traustar rætur. Árið 1959 hóf Sveinn Snorrason hrl. rekstur lögmannsstofu og í framhaldinu komu þeir til samstarfs við hann Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl., Jónas A. Aðalsteinsson hrl. og Jóhannes L.L. Helgason hrl. Sú stofa stækkaði og dafnaði og var rekin undir heitinu LEX frá árinu 1987. Árið 2000 sameinaðist LEX lögmönnum KPMG en stofan starfaði áfram undir merkjum LEX. Þann 1. janúar 2005 sameinuðust lögmannsstofurnar LEX og Nestor. Saga Nestor hófst þegar Jón Steinar Gunnlaugsson, nú hæstaréttardómari, hóf rekstur lögmannsstofu undir eigin nafni á árinu 1977. Síðar gekk Karl Axelsson hrl. og dósent til liðs við hann og þeir ásamt fleirum stofnuðu lögmannsstofuna Nestor, sem fyrr er nefnd. Á þessum trausta grunni er nú orðin til ein stærsta lögmannsstofa landsins þar sem starfa rúmlega 30 lögmenn. LEX er til húsa í glæsilegu húsnæði að Borgartúni 26 í Reykjavík og í Hafnarstræti 94 á Akureyri.

Lögmenn LEX kappkosta að veita alhliða og framúrskarandi lögmannsþjónustu til fyrirtækja, opinberra stofnana, sveitarfélaga, banka og einstaklinga hér á landi. Meðal viðskiptavina er einnig fjöldi erlendra banka og fyrirtækja.

Í krafti stærðar og reynslu getur LEX boðið sérhæfða þjónustu á öllum sviðum lögfræðinnar, bæði hér heima og erlendis. Má sem dæmi nefna skattarétt, auðlinda-, orku- og umhverfisrétt, banka-, fjármála- og félagarétt, eignarétt, samkeppnisrétt, verktaka- og útboðsrétt, stjórnsýslurétt, sveitarstjórnarrétt, gjaldþrotarétt, hugverkarétt og skiptastjórn. Á ákveðnum sviðum hafa auk þess verið sett upp sérhæfð teymi lögmanna. Hjá LEX starfa síðan nokkrir af reynslumestu og þekktustu málflytjendum landsins sem samanlagt hafa flutt hundruði mála fyrir Hæstarétti Íslands. Jafnframt hefur LEX styrkt rannsóknir á sviði lögfræðinnar og lögmenn hennar tekið þátt í fræðastarfi og stundað kennslu við háskóla landsins.

LEX er meðlimur í Lawyers Associated Worldwide (LAW). Auk þess er stofan í miklum og góðum tengslum við aðrar virtar erlendar lögmannsstofur og hefur á því sviði sérstaklega einbeitt sér að Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum, Bretlandi og Bandaríkjunum. Þær stofur eru síðan sumar hverjar með útibú í Kína, Rússlandi, Úkraínu og fleiri löndum. Lögmenn LEX koma þeim aðilum sem þess óska í persónuleg kynni við lögmenn þessara „vinastofa“ sinna sem þar með njóta forgangsþjónustu í þessum löndum.

Stjórn LEX skipa nú Karl Axelsson hrl., formaður stjórnar, Þórunn Guðmundsdóttir hrl., Kristín Edwald hrl. og Ólafur Haraldsson hrl., meðstjórnarmenn. Faglegur framkvæmdastjóri er Heimir Örn Herbertsson hrl. og framkvæmdastjóri er Katrín Jónasdóttir.

Reykjavík
LEX ehf
Borgartúni 26
105 Reykjavík
Sími 590 2600
Bréfasími 590 2606

Akureyri
LEX ehf
Hafnarstræti 94
600 Akureyri
Sími  590 2600
Bréfasími  590 2680

Kennitala 570297-2289
vsk.nr. 53418



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli